Sparisjóðirnir á Íslandi vilja bæta fyrir sinn þátt í þeim vanda sem nú er að kljást við og heita því að taka þátt í uppbyggingu íslensks samfélags. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Sambands íslenskra sparisjóða. Þá skorar fundurinn á stjórnvöld að koma með öllum ráðum í veg fyrir að það viðskiptasiðferði sem komst á í kjölfar einkavæðingar bankanna nái fótfestu að nýju.
Í ályktuninni segir einnig að þótt margir sparisjóðir séu laskaðir eftir undangengin áföll hafi þeir þrátt fyrir allt flestir enn staðið af sér bankahrunið. Þeir hafi nú samið við innlenda og erlenda lánadrottna sína en þurfi aðeins tímabundna aðkomu ríkisins til að komast í gegnum erfiðleikana.
„Sparisjóðir landsins hafa skerpt á hugmyndafræði sinni og lýst vilja til að stokka allt sparisjóðakerfið upp sem leiðandi afl við að byggja upp trausta fjármálaþjónustu. Þar verður gengið út frá því að sparisjóðir verði opin fjöldahreyfing með mikilvægt samfélagslegt hlutverk sem þeir eru tilbúnir að rækja áfram.
Það væri mikið tjón ef fleiri sparisjóðir féllu. Aðeins þarf tímabundna aðkomu frá ríkissjóði til að tryggja framtíð sparisjóðanna. Sá stuðningur er smávægilegur fjárhagslega í samanburði við þau útgjöld sem ríkið hefur þurft að bera vegna endurreisnar bankanna og ljóst að kostnaður ríkisins verður meiri og vandamál samfélaga um land allt aukast ef sparisjóðirnir hverfa,” segir ennfremur í ályktun fundarins.