Forsetinn í Abu Dhabi

Ólafur Ragnar Grímsson.
Ólafur Ragnar Grímsson.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sat um helgina fund dómnefndar Zayed orkuverðlaunanna, sem eru veitt fyrir nýjungar og forystu á vettvangi hreinnar orku. Fundurinn var haldinn í Abu Dhabi enda eru verðlaunin kennd við fyrrum leiðtoga landsins.

Verðlaunin verða afhent á heimsþingi um orkumál framtíðar, sem haldið verður í Abu Dhabi dagana 18.-21. janúar næstkomandi. Verðlaunaupphæðin nemur 1,5 milljónum Bandaríkjadala og bárust yfir 600 tilnefningar víða að úr veröldinni.

Auk forseta Íslands skipa dómnefndina  R. K. Pachauri, formaður Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, Susan Hockfield rektor MIT háskólans í Bandaríkjunum, Norman Foster, arkitekt, Browne lávarður, fyrrum forstjóri BP, og Helene Pelosse framkvæmdastjóri hinnar nýju alþjóðastofnunar endurnýjanlegrar orku, IRENA.

Ólafur Ragnar heimsótti byggingarsvæði hinnar væntanlegu Masdar borgar sem ætlað er að verða fyrsta mengunarlausa borg veraldar. Útblástur koltvísýrings verður enginn og allur úrgangur endurunninn. Sveit íslenskra sérfræðinga vinnur nú að undirbúningi borana eftir jarðhita á borgarsvæðinu, en ætlunin er að nýta jarðhita til að knýja loftkælingu borgarinnar. Verða þetta fyrstu jarðhitaboranirnar í þessum heimshluta. 

Þá átti Ólafur Ragnar fund með Helene Pelosse, framkvæmdastjóra IRENA, um reynslu og þekkingu í nýtingu hreinnar orku sem Íslendingar geta látið öðrum þjóðum í té. Hann hitti einnig tvo íslenska stúdenta sem stunda framhaldsnám við hinn nýstofnaða Masdar háskóla sem settur var á fót í samvinnu við bandaríska háskólann MIT. Allur náms- og dvalarkostnaður íslensku stúdentanna er greiddur af Masdar sem bauð forseta Íslands á liðnu ári að hlutast til um að íslenskir námsmenn kæmu til háskólanáms í Abu Dhabi. Nú hefur verið ákveðið að bjóði fleiri Íslendingum að stunda nám við Masdar háskólann.

Fyrr í dag átti Ólafur Ragnar fund með þjóðarleiðtoga Abu Dhabi, Sheik Mohamed bin Zayed Al Nahyan, sem lýsti sérstakri ánægju með störf íslenskra sérfræðinga, verkfræðinga og vísindamanna í Abu Dhab, samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta Íslands. 

Loks hitti Ólafur Ragnar í morgun starfsmenn íslensku  verkfræðistofunnar Eflu, en verkfræðingar og tæknifræðingar á hennar vegum vinna nú við byggingu nýs álvers í Abu Dhabi, EMAL, sem verður meðal stærstu álvera veraldar. Eflumenn nýta sér á þessum vettvangi reynslu og þekkingu sem þeir hafa aflað sér á Íslandi á undanförnum árum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert