„Ef ég skil þetta rétt var tekin ákvörðun um að taka ekki ákvörðun fyrr en eftir áramót, og ég tel ekki ástæðu til sérstakra viðbragða vegna þess,“ segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, um ákvörðun Arion banka að taka sér tvo mánuði til að meta tilboð um fjárhagslega endurskipulagningu 1998 ehf. „Þeir hljóta að hafa sínar ástæður fyrir frestuninni og ég hef enga ástæðu til að draga í efa að það sé skynsamlegt.“
Tilboðið var lagt fram að Jóhannesi Jónssyni, erlendum fjárfestum og stjórnendum Haga. Ekki hefur komið fram hvað felst í tilboðinu annað en að samkvæmt því komi ekki til neinna afskrifta á skuldum vegna 1998.
Áður hafði lögmaður Þjóðarhags gengið á fund bankastjóra Arion og falast eftir Högum. Honum var tilkynnt að Hagar væru ekki til sölu. Í fjöldapósti sem sendur var út til þeirra sem skráð sig hafa á vefsíðu Þjóðarhags er Arion banki gagnrýndur. Segir að það virðist vera í mótsögn að endurskipulagning fyrirtækisins með nýjum eigendum standi fyrir dyrum, en fyrirtækið sé ekki til sölu.
Spurður hvort ekki sé ástæða til að auka samkeppni á matvörumarkaði segir Gylfi það raunar sjálfstætt mál. „Margir hafa áhyggjur af samþjöppun á ýmsum mörkuðum, en matvörumarkaðurinn er auðvitað mjög áberandi. Ég ætla að vona að þeir sem sýsla með innföllnu fyrirtækin og fyrirtækjasamsteypurnar taki tillit til samkeppnissjónarmiða.“
Gylfi bendir á að samkeppniseftirlitið hafi beint þeim tilmælum til bankanna að hafa í heiðri samkeppnissjónarmið. „Hvort það verði niðurstaðan í þessu máli eða ekki vona ég og trúi að bankarnir taki tillit til þeirra sjónarmiða þegar þeir eru að leysa úr vandamálum fyrirtækjasamsteypa sem hafa haft mjög mikla markaðshlutdeild á tilteknum mörkuðum.“