Ökumaður fólksbíls, sem var á leið úr Borgarfirði til Sauðárkróks á sunnudag, lenti í ógöngum þegar hann treysti um of á GPS staðsetningartækið í bíl sínum.
Sagt er frá þessu á vef Skessuhorns í dag. Þar kemur fram, GPS tækið gaf ökumanninum upp stystu leið á Sauðárkrók. Ökumaður fylgdi leiðbeiningunum og ók sem leið lá upp í Þverárhlíð í Borgarfirði og þaðan norður Grjótháls sem Vegagerðin hefur nú afsalað sér forræði yfir.
Skessuhorn segir, að á leiðinni yfir hinn munaðarlausa Grjóthálsveg niður í Norðurárdal hafi för mannsins lokið en veguruinn var mjög grýttur og urðu skemmdir á bílnum.