Eignarhaldsfélagið Fasteign hefur ákveðið að lækka leigu á fasteignum sem Vestmannaeyjabær leigir. Leigan mun lækka úr tæpum 17 milljónum, sem greitt var fyrir leiguna í nóvember, niður í rúmar 12 milljónir, að því er fram kemur á vef Eyjafrétta.
Leigugreiðslur hafa hækkað óheyrilega seinustu misseri. Þannig var leigurgreiðsla Vestmannaeyjabæjar til Fasteignar 9,4 milljónir í nóvember 2007, 15 milljónir í nóvember 2008 og í nóvember 2009 var upphæðin komin upp í 16,9 milljónir. Leiguverð hafði því hækkað um 80% á tveimur árum eða um 7,5 milljónir.
„Bæjarráð fagnar ákvörðun EFF um lækkun leigu enda hafa leigugreiðslur hækkað óheyrilega seinustu misseri. Eftir tilgreinda breytingu verður leiga Vestmannaeyjabæjar af fasteignum í eigu EFF rúmar 12 milljónir á mánuði,“ segir í bókun bæjarráðs frá því í gær.