Aðgerðaviðurkenningar Stígamóta árið 2009 eru í ár veittar þeim Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra, Sigríði Björk Guðjónsdóttur lögreglustjóra á Suðurnesjum, Öldu Hrönn Jóhannsdóttur stjórnanda lögreglurannsóknar hjá lögreglunni og Berglindi Eyjólfsdóttur rannsóknarlögreglukonu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stígamótum, en þar segir einnig að nú sé því fagnað að eftir tíu ára baráttu séu mansalsmál í klámiðnaði loksins tekin alvarlega.
„Með samstilltu átaki dómsmálaráðherra, lögreglustjóra á Suðurnesjum, stjórnanda lögreglurannsóknar og sérfræðingi lögreglunnar í mansalsmálum sem allar eru konur, hefur verið ráðist í umfangsmiklar rannsóknir til þess að fletta ofan af mögulegu mansalsmáli. Þetta ber að þakka. Megi það verða fleirum hvatning til þess að hrinda í framkvæmd lögum og áætlunum,“ segir í tilkynningunni.
Einnig eru veittar jafnréttisviðurkenningar Stígamóta og í ár hljóta þær Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, leikskáld og rithöfundur, Fríða Rós Valdimarsdóttir höfundur skýrslu rauða krossins um mansal og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, leiðbeinandi hjá Stígamótum.