Hollensk góðgerðarsamtök hafa styrkt Fjölskylduhjálp Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá fjölskylduhjálpinni styðja hollensku samtökin við sex verkefni árlega víða um heim og í ár var Fjölskylduhjálp Íslands eitt þeirra.
Um er að ræða samtökin Foundation Varda, sem veittu Fjölskylduhjálp Íslands 2.500 evra styrk, jafnvirði 460 þúsund króna.