Í október 2009 voru 106 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 78 fyrirtæki í október 2008. Jafngildir það tæplega 36% fjölgun milli ára.
Fram kemur í nýju yfirlit Hagstofunnar, að fyrstu 10 mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 747 en fyrstu tíu mánuði ársins 2008 voru 600 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem jafngildir 24,5% aukningu milli ára.
Flest gjaldþrot í október, eða 24, voru í
byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 18 gjaldþrot voru í heild- og
smásöluverslun og á bílaverkstæðum.