Nú um helgina verður í fyrsta sinn á Íslandi alþjóðlegt mót skylmingakappa sautján ára og yngri. Mótið, Reykjavík Cup er liður í Evrópskri mótaröð og veitir þátttakendum stig í henni.
Íslenskar stúlkur eru sterkar á skylmingasvellinu og segja þeir sem til þekkja að þess sé skammt að bíða að Íslendingar eignist alþjóðlegan skylmingameistara.