Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokks, hefur sent fyrirspurn til efnahags- og viðskiptaráðherra um kostnað vegna starfa erlendra sérfræðinga í Seðlabankanum.
Spurningar Eyglóar eru eftirfarandi:
1.
Hver var
heildarkostnaðurinn, sundurliðað eftir mánuðum, við störf Sveins Haralds
Öygards, sem var settur Seðlabankastjóri fyrr á árinu, þ.m.t. laun, ferðir,
þýðingar og túlkaþjónustu, og hver bar kostnaðinn?
2.
Hver er
heildarkostnaður, sundurliðað eftir mánuðum, við setu Anne Sibert í
peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands, þ.m.t. laun, ferðir, þýðingar og
túlkaþjónustu, og hver ber kostnaðinn?
3.
Hver er
heildarkostnaður, sundurliðað eftir mánuðum, við setu Daniels Gros í bankaráði
Seðlabanka Íslands, þ.m.t. laun, ferðir, þýðingar og túlkaþjónustu, og hver ber
kostnaðinn?