Bíll skemdist talsvert í síðustu viku þegar hann lenti upp á umferðreyju sem komið hefur verið fyrir á miðjum Suðurlandsvegi á móts við bensínsstöð Atlantsolíu á Selfossi.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi er þetta í það minnsta þriðja óhappið af þessu tagi sem þarna verður eftir að eyjan var sett upp í haust. Svo virðist sem ekki dugi til að hafa þar umferðarmerki sem varar við þessu mannvirki.