Yfir 30 starfsmönnum Ölgerðar Egils Skallagrímssonar var sagt upp störfum í dag sem er ríflega 10% starfsmanna. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja aðgerðirnar gerðar vegna aukinna skattaálaga á fyrirtækið.
Til að minnka þörf á frekari uppsögnum eru þeir starfsmenn sem eru með hærri laun en 350 þúsund á mánuði beðnir um að afsala sér 3,5% hækkun sem standi til skv. kjarasamningum.
Hluti
starfsmanna verður beðinn um að samþykkja minna starfshlutfall og
fleiri leiða verður leitað til að mæta þessum þrengingum á markaði. Um
276 manns störfuðu hjá Ölgerðinni fyrir þessar uppsagnir,