Starf bankastjóra Arion banka verður auglýst til umsóknar þegar ráðningarsamningur við Finn Sveinbjörnsson, núverandi bankastjóra, rennur út um áramót. Mun Finnur ekki sækja um starfið. Greindi hann frá þessu á fundi með starfsmönnum bankans rétt í þessu.
Tilkynnti hann jafnframt að skilanefnd gamla Kaupþings hefði ákveðið að eignast 87 prósenta hlut í Arion.
Skilanefnd Kaupþings mun á næstu dögum auglýsa bankastjórastarf Arion bank laust til umsóknar. Segir nefndin að það sé mat stjórnar Arion banka og skilanefndar Kaupþings að með því að hafa þennan háttinn á við ráðningu nýs bankastjóra aukist traust viðskiptavina og kröfuhafa á bankanum og starfsemi hans.
Fram kemur í sameiginlegri tilkynningu skilanefndar Kaupþings og fjármálaráðuneytisins, að skilanefndin leggi fram 66 milljarða í stað ríkisins en við fjármögnun bankans skuldbatt ríkið sig til að leggja bankanum til 72 milljarða króna í eigið fé. Í samkomulagi við ríkið felst að ríkið leggur Arion banka til víkjandi lán í erlendri mynt sem hækkar eiginfjárgrunn hans í 16%.
Í tilkynningunni segir, að skilanefndin telji að virkt eignarhald í Arion banka muni hámarka verðmæti þeirra eigna sem fluttar voru á milli bankanna í október 2008.
Hlutafé Arion banka er rúmlega 72 milljarðar króna og eiginfjárþáttur A er 12%. Bankinn er fullfjármagnaður og lausafjárstaða hans traust. Bankinn hefur skilað jákvæðri rekstrarniðurstöðu frá stofnun í október 2008. Í tilkynningunni segir, að með aðkomu skilanefndar verði Arion banki öflugur banki og vel í stakk búinn til að leiða uppbyggingu íslensks efnahagslífs, einstaklingum og fyrirtækjum í landinu til góða.
Ákvörðun skilanefndar er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Skilanefnd Kaupþings fer með eignarhald bankans fyrir hönd kröfuhafa í gegnum sérstakt eignarhaldsfélag og Arion banki verður því sjálfstætt dótturfélag. Skilanefnd skipar fjóra stjórnarmenn bankans af fimmen íslenska ríkið skipar einn. Stefnt er að því að fulltrúar skilanefndar í nýrri stjórn verði tveir erlendir og tveir innlendir sérfræðingar, þar af einn úr skilanefnd. Ný stjórn bankans verður skipuð þegar samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir.