Hollendingar ætla ekki að segja upp Icesave-samningi

Hollensk stjórnvöld ætla ekki að nýta sér uppsagnarákvæði í samkomulagi við Íslendinga um Icesave-skuldbindingarnar þótt Alþingi hafi ekki afgreitt ríkisábyrgð vegna skuldbindinganna fyrir mánaðamótin.

Þetta hefur hollenska blaðið NRC Handelsblaad eftir ónafngreindum heimildarmönnum í dag.

Blaðið segir, að frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna hafi verið rætt á Alþingi í sumar í 46 klukkustundir og niðurstaðan hafi verið að ábyrgðin var samþykkt með miklum fyrirvörum. Hollendingar og Bretar hefðu hafnað nánast öllum þessum fyrirvörum en um miðjan október hefði verið gerður nýr samningur, sem nú sé fjallað um á Alþingi.

Handelsblaad segir að Íslendingar séu almennt andvígir Icesave-samkomulaginu vegna þeirra byrða, sem það leggur á herðar þeirra. Segir blaðið, að InDefense hópurinn hafi nú safnað um 16.000 nöfnum undir áskorun til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að staðfesta ekki væntanleg lög um ríkisábyrgð. Ólíklegt sé hins vegar að forsetinn verði við því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert