Vinnumálastofnun bárust þrjár hópuppsagnir í nóvembermánuði þar sem sagt var upp 118 manns. Um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð og framleiðsluiðnaði og er ástæðan m.a.endurskipulagning vegna verkefnaskorts og rekstrarerfiðleikar.
Þessar hópuppsagnir koma til framkvæmda á tímabilinu janúar til mars 2010.
Alls hefur því 1606 manns verið sagt upp með hópuppsögnum það sem af er árinu 2009, að stærstum hluta í mannvirkjagerð (46%) og fjármálastarfsemi (19%).
Þær hópuppsagnir sem tilkynntar hafa verið á árinu 2009 hafa flestar komið til framkvæmda nú þegar, flestir sem hópuppsagnirnar náðu til misstu vinnuna í ágúst eða um 370 manns. Nálægt 180 manns misstu vinnuna í október, um 150 manns misstu vinnuna í nóvember, um 50 er áætlað að munu missa vinnuna í desember, um 113 manns í janúar 2010, um 39 í febrúar 2010 og um 26 manns í mars.