Í byrjun ársins 2009 voru 28.644 innflytjendur á Íslandi eða 9%
mannfjöldans. Það er mikil aukning frá árinu 1996 þegar innflytjendur
voru einungis 2% landsmanna eða 5.357 alls. Á sama tímabili hefur
þeim sem hafa engan erlendan bakgrunn fækkað hlutfallslega úr 93,7% í
84,6%.Pólverjar eru langfjölmennasti hópur innflytjenda hér.
Þetta kemur fram í nýju riti Hagstofunnar. Tæpur þriðjungur innflytjenda árið 1996 var frá
Norðurlöndunum en einungis 6,3% í ársbyrjun 2009. Innflytjendum frá
öðrum Evrópulöndum en Norðurlöndum hefur hins vegar fjölgað mjög á sama
tímabili. Þeir voru 39,8% allra innflytjenda árið 1996 en 72,9% í
byrjun árs 2009. Hlutur innflytjenda frá öðrum heimsálfum en
Norður-Ameríku hefur staðið í stað. Innflytjendum frá Norður-Ameríku
fækkaði mikið eða úr 8,2% 1996 í 2,6% árið 2009.