77,5% samdráttur í bílainnflutningi

Nýskráningar bíla fyrstu 11 mánuði ársins voru 2747 sem er 77,5% fækkun frá sama tímabili í fyrra. Síðastliðna 12 mánuði, til loka nóvember, voru nýskráningar bíla 2824 en það er 79,3% fækkun frá fyrra tólf mánaða tímabili.

Í nóvember voru nýskráðir 152 bílar hér á landi og er það aukning frá sama tímabili í fyrra þegar nýskráðir voru 123 bílar. Er þetta í fyrsta skipti, sem nýskráningum bíla í einum mánuði fjölgar milli ára frá því í febrúar á síðasta ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert