Grunaðar um mansal og vændi

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Jakob Fannar

Tvær konur hafa verið úrskurðaðar í gæsluvarðhald til 11. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Konurnar, önnur um tvítugt en hin um þrítugt, eru grunaðar um aðild að mansali og að hafa haft milligöngu um vændi. Þær eru báðar íslenskir ríkisborgarar.

Rannsókn málsins hefur staðið yfir undanfarnar vikur og í tengslum við hana hefur lögreglan lokað fyrir vændisstarfsemi í húsi í miðborginni, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.

Áðurnefndar konur voru handteknar í gær en samhliða voru framkvæmdar húsleitir á tveimur stöðum en á öðrum þeirra fannst lítilræði af fíkniefnum.

A.m.k. þrjár aðrar konur koma við sögu í  málinu en þær eru taldar hafa lagt stund á vændi. Umræddar konur eru allar á fertugsaldri og af erlendu bergi brotnar. Mál einnar þeirrar er jafnframt rannsakað sem mansalsmál en konurnar þrjár hafa verið færðar til skýrslutöku hjá lögreglu. Rannsóknin tekur einnig til þeirra sem keyptu kynlífsþjónustuna sem veitt var.

Lögreglan segir að ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert