UMFÍ auglýsir eftir mótshaldara

Frá unglingalandsmóti UMFÍ í Þorlákshöfn.
Frá unglingalandsmóti UMFÍ í Þorlákshöfn. Ómar Óskarsson

Stjórn Ungmennafélags Íslands ákvað í dag að auglýsa eftir nýjum mótshaldara fyrir Unglingalandsmót UMFÍ 2010. Stjórnin ákvað þetta á fundi sínum í Reykjavík í dag. Umsóknarfrestur verður til 10. janúar 2010.

Í tilkynningu frá UMFÍ segir að Grundarfjarðabær og Héraðssamband Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu (HSH) hafi upphaflega átt að hýsa mótið 2009. Þau fengu frest til 2010 vegna efnahagskreppunnar.  „Grundarfjarðarbær er ekki tilbúinn til að standa undir þeim kröfum UMFÍ sem gerðar eru til mótsins og því er auglýst eftir mótshaldara 2010,“ segir í fréttatilkynningu UMFÍ.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert