Brotist var inn í golfskála golfklúbbsins Keilis, Steinholti 1, í Hafnarfirði í gærkvöldi. 46 tommu flatskjá að verðmæti 500.000 króna var stolið úr aðalsal klúbbsins. Málið var tilkynnt rétt fyrir miðnætti og er í rannsókn, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Brotist var inn í snyrtistofu í verslunarmiðstöðinni Grænatúni 1 í Kópavogi og miklu magni af gjafaöskjum stolið. Tveir piltar sáust hlaupa af vettvangi en enginn hefur verið handtekinn enn. Útihurð var spennt upp.
Ennfremur voru tveir menn handteknir á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um ölvunaraktstur.