Jeppi valt á þjóðvegi 1 við bæinn Brekkukot í Austur-Húnavatnssýslu um kl. 18:50 í kvöld. Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni, en hann slapp lítið meiddur. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi er ísing á veginum.
Ökumaðurinn var fluttur á heilsugæsluna í Blönduósi til skoðunar og hefur verið útskrifaður. Jeppinn er illa farinn eftir veltuna.