Um áramótin hækkar heildsöluverð raforku frá Landsvirkjun um 4,4%. Segir fyrirtækið, að þessi hækkun byggist á því að í langtímasamningum um sölu á rafmagni og svonefndum grunnorkusamningum séu ákvæði um að verð geti tekið árlegum breytingum í samræmi við hækkandi verðlag.
Landsvirkjun ákvað 1. júlí sl. að hækka einingaverð heildsölusamninga um 7,5% en segir að það hafi aðeins verið hluti þeirrar 11,9% hækkunar á vísitölu neysluverðs sem hafði þá átt sér stað og þannig hafi fullri samningsbundinni hækkun á gjaldskránni verið frestað.
Nú hafi verið ákveðið að hækkunin komi til framkvæmda um áramótin. Hækkunin nemur 4,4% og tekur hún til 7 og 12 ára heildsölusamninga og grunnorkusamninga.
Reykjavík, 7. desember 2009