Barnaheill, Save the Children, á Íslandi fengu nýverið sjö milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu vegna menntaverkefnis Barnaheilla í Úganda. Verkefnið sem Barnaheill styðja miðar að því að auka skólaaðgang og bæta gæði menntunar í Paderhéraði í Norður-Úganda sem hefur verið vettvangur stríðsátaka undanfarin 20 ár, samkvæmt tilkynningu.
Með verkefninu er lögð áhersla á að ná til barna sem ekki eru í skóla og þá sérstaklega stúlkna, bæta kennsluaðferðir og kennsluumhverfi og að styðja menntayfirvöld í því að efla menntun og vernda börn á átakasvæðum gegn ofbeldi og misnotkun. Þúsundir barna dvelja eða hafa dvalið í flóttamannabúðum í Paderhéraði og hafa ekki átt kost á skólagöngu.
Barnaheill á Íslandi hafa lagt samtals um 40 milljónir íslenskra króna í verkefnið á síðastliðnum tveimur árum.