Verkefnisstjórn um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum leggur til, að á næstu árum verði lögð áhersla á átta meginaðgerðir svo stjórnvöld geti staðið við skuldbindingar um minni losun gróðurhúsalofttegunda. Segir verkefnsstjórnin að aðgerðir á sviði skógræktar og landgræðslu muni skila mestum árangri.
Verkefnisstjórnin segir að aðgerðirnar séu flestar á þremur sviðum: Samgöngum, sjávarútvegi og landnotkun. Þetta sé í samræmi við niðurstöður sérfræðinganefndar, sem komst að því að árangursríkustu og hagkvæmustu aðgerðirnar eru í þessum geirum.
Umræddar átta meginaðgerðir, sem eiga að leiða til 19-32% minni losunar gróðurhúsalofttegunda en ella hefði verið, eru eftirfarandi:
Verkefnisstjórnin segir, að áhersla á þessar átta meginaðgerðir eigi að tryggja að íslensk stjórnvöld geti staðið við væntanlegar skuldbindingar sínar í loftslagsmálum til 2020. Þótt þunginn í framkvæmd loftslagsstefnu verði í þessum meginaðgerðum eigi jafnframt að leita leiða til þess að draga úr losun í öðrum geirum, s.s. frá landbúnaði og með bættri meðferð úrgangs.