Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi í Borgarnesi fyrr í kvöld. Slökkvilið var kallað á staðinn og gekk vel að slökkva eldinn.
Eldurinn kviknaði í eldhúsi þegar verið var að sjóða kartöflur. Reyk lagði um alla íbúðina og að sögn lögreglunnar í Borgarnesi urðu talsverðar skemmdir af völdum sóts. Í íbúðunni bjuggu ung hjón af erlendum uppruna með tveggja ára barn.