Allt að 79% íslenskra ríkisborgara sem fluttu búferlum til útlanda á tímabilinu 1986 til 2008, snéru aftur til Íslands eftir að meðaltali 2,4 ára dvöl. Erlendir ríkisborgarar, sem fóru af landi brott, snéru til baka í mun minna mæli, eins og við má búast, en 17% þeirra hafa þó snúið til baka eftir innan við ársdvöl erlendis.
Þetta kemur m.a. fram í nýju riti Hagstofunnar um endurkomur brottfluttra. Þar segir, að yngra fólk sé líklegra en eldra fólk til að koma til baka. Þá séu íslenskir ríkisborgarar, sem flytja til einhverra Norðurlandanna, líklegra en aðrir til að skila sér til baka, eða 84%. Ólíklegastir til að snúa til baka eru þeir sem flytja til Norður-Ameríku, en endurkomuhlutfallið þaðan er 59%.
Alls voru 112.494 aðflutningar á tímabilinu 1986–2008. Af þeim flokkast 57.820 flutningar sem endurkomur eða 51%. Fram til ársins 2003 var þetta hlutfall enn hærra eða 63%.
Lítill munur er á íslenskum körlum og konum í hópi þeirra sem koma aftur eftir dvöl erlendis, eða 1028 karlar á hverjar 1.000 konur hjá þeim sem komu aftur innan 8 ára frá brottför.
Endurkomur brottfluttra 1986-2008