Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði á laugardag för útlendings sem fór um Leifsstöð eftir í fórum hans fannst hálft kíló af kókaíni. Maðurinn var í kjölfarið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Samkvæmt heimildum mbl.is var um Rúmena að ræða. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. desember nk.