Strætisvögnum verður ekið samkvæmt hefðbundinni áætlun á virkum degi á Þorláksmessu. Á aðfangadag og gamlársdag verður ekið samkvæmt laugardagsáætlun til um það bil kl. 14:00, en þá hætta vagnar akstri. Á jóladag og nýársdag verður enginn akstur. Annan í jólum verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó bs.