Lýsa yfir vantrausti á varaformann VR

Bjarki Steingrímsson
Bjarki Steingrímsson

Stjórn VR samþykkti tillögu um vantraust á Bjarka Steingrímsson sem varaformann stjórnar VR á fundi í hádeginu í dag. Ástæðurnar eru trúnaðarbrestur og samstarfsörðugleikar. Nefnir stjórnin ræðu Bjarka á útifundi á Austurvelli sem eina af ástæðum þess að ákveðið var að lýsa yfir vantrausti á Bjarka.

Að mati stjórnar tók steininn úr þegar hann hélt ræðu á útifundi á Austurvelli þann 5. desember s.l. þar sem hann lítilsvirti ekki eingöngu störf eigin félags heldur verkalýðshreyfingarinnar í heild sinni, að því er segir í tilkynningu frá stjórn VR.

„Eftir kosningar til stjórnar VR í vor skipti stjórn með sér verkum og fól Bjarka að fara með embætti varaformanns. Formaður VR er talsmaður félagsins út á við en í forföllum hans sinnir varaformaðurinn því hlutverki. Málfrelsi tíðkast innan stjórnar VR og eru ákvarðanir teknar á lýðræðislegan hátt. Mikilvægt er að stjórnarmenn tali ekki gegn ákvörðunum stjórnar, sérstaklega er mikilvægt að forsvarsmenn stjórnarinnar séu samstíga. Það hefur Bjarki ekki virt, að mati stjórnar. Hann hefur ítrekað, í nafni félagsins, talað gegn ákvörðunum stjórnar VR, bæði við fjölmiðla og annars staðar á opinberum vettvangi. Ummæli hans hafa iðulega komið formanni og stjórn í opna skjöldu.

Þá hefur Bjarki dylgjað um meint leynimakk innan félagsins, farið með ósannindi og sakað samstjórnendur sína um blekkingar. Í ræðu sinni á Austurvelli fyrr í þessum mánuði talaði hann með óviðeigandi hætti af varaformanni stærsta stéttarfélags landsins. Hann sakaði félagið og verkalýðshreyfinguna alla um að ganga erinda stjórnmálaflokka og vinna vísvitandi gegn hagsmunum félagsmanna. Sú staðhæfing er fráleit og eingöngu til þess fallin að mynda gjá milli félags og félagsmanna á tímum þegar samstaða skiptir öllu máli.

Stjórn VR fær ekki séð hvernig dylgjur og rangfærslur Bjarka þjóni hagsmunum félagsmanna. Með framkomu sinni hefur hann skaðað hagsmuni félagsins og brugðist því trausti sem borið var til hans sem varaformanns. Stjórn taldi sig því ekki eiga annarra kosta völ en að samþykkja vantraust. Bjarki mun áfram sitja í stjórn félagsins eins og hann var kosinn til af félagsmönnum.

Á fundinum í hádeginu var Ásta Rut Jónasdóttir kosin varaformaður og hefur hún þegar tekið við. Ásta Rut kom ný inn í stjórn í apríl síðastliðnum og var í forsvari fyrir framboð L lista, Lýðræðis fyrir VR. Á þeim lista voru m.a. fjórir stjórnarmenn sem allir sitja nú í stjórn VR, þar á meðal fyrrverandi varaformaður, Bjarki Steingrímsson," að því er segir í tilkynningu frá VR.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert