Miðstjórn ASÍ mótmælir vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar

Frá ársfundi ASÍ.
Frá ársfundi ASÍ.

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands mótmælir harðlega þeim vinnubrögðum ríkisstjórnar Íslands að virða ekki gerða samninga. Þetta kemur fram í ályktun sem miðstjórnar ASÍ hefur sent frá sér um áformuð samningssvik ríkisstjórnarinnar.

„Samkvæmt stjórnarfrumvarpi um breytingar tekjuskattskerfinu þá áforma stjórnvöld að afnema verðtryggingu persónuafsláttar sem ASÍ samdi um við þáverandi ríkisstjórn í tengslum við endurskoðun kjarasamninga 2006. 

Ríkisstjórnin lætur ekki þar við sitja heldur áformar einnig, einhliða og án viðræðna við sinn viðsemjanda, að afnema 3000 króna sérstaka hækkun persónuafsláttar sem verkalýðshreyfingin samdi um við ríkisstjórnina í tengslum við kjarasamninga í febrúar 2008 og er hluti af gildandi kjarasamningi.

Miðstjórn ASÍ hafnar alfarið vinnubrögðum af þessu tagi þar sem ekki er staðið við gerða samninga.  Miðstjórn ASÍ  krefst þess að ríkisstjórnin dragi þessar hugmyndir til baka þegar í stað.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert