Starfskonurnar í Hulduhlíð, Dvalarheimili aldraðra á Eskifirði, ætlaði ekki að trúa sínum eigin eyrum þegar þeim var tjáð að ekkert jólatré yrði sett upp við Hulduhlíð í ár. Þær ákváðu að það gengi heldur tóku til sinna ráða til að gera jólalegt eins og hefðin boðar.
Þær biðluðu í kjölfarið til Skógræktar ríkisins sem gaf dvalarheimilinu tré
og Byko á Reyðarfirði gaf svo öll jólaljósin sem tréð prýða. Starfskonurnar sáu
svo sjálfar um að setja tréð upp í Hulduhlíð með hjálp eiginmanna sinna í
sjálfboðavinnu og skreyta það.
Jólatré hefur verið sett upp árlega fyrir jólin í Hulduhlíð síðustu 20 árin vistmönnum til mikillar gleði. Fyrir tilstilli starfskvennanna getur gamla fólkið nú tekið gleði sína að nýju.