Breytingar gerðar á skattatillögunum

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Eggert Jóhannesson

„Við munum reyna að gera vissar breytingar til að koma til móts við vel rökstudd sjónarmið sem sett hafa verið fram. Ég geri ráð fyrir því að þegar upp er staðið verði breytingarnar aðeins einfaldari,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um fyrirhugaðar skattabreytingar.

Fram hefur komið gagnrýni á skattafrumvörpin, ekki síst á fjölþrepaskattinn, m.a. vegna þess að endurálagning og eftirágreiðslur muni stóraukast.


„Það verður að sjálfsögðu ekki bæði sleppt og haldið,“ segir Steingrímur um gagnrýnina. „Ég hef sagt að einfaldasta skattkerfið væri einn skattur á allt með einni prósentu,“ segir hann. „En þá er ég hræddur um að réttlæti og tekjujöfnun yrði fórnað hressilega. Við erum alltaf að leita málamiðlana á milli sjónarmiða um að dreifa skattbyrðinni með félagslega réttlátum hætti og auðvitað að reyna að hafa kerfið eins einfalt og skilvirkt og mögulegt er án þess að missa sjónar á þeim markmiðum að það sé um leið réttlátt.“


Steingrímur segir ekki tímabært að greina frá hvaða breytingar er fyrirhugað að gera á skattafrumvarpinu. „En ég spái því að menn muni sjá þess stað að við reynum að gera þetta aðeins einfaldara og tökum að sjálfsögðu til skoðunar öll sjónarmið sem koma fram. Við getum ekki mætt þeim öllum því þau ganga stundum í ólíkar áttir.“


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka