Engar hækkanir til Landspítala vegna gengisáhrifa

Landspítalinn við Hringbraut.
Landspítalinn við Hringbraut. mbl.is/Ómar

„Það vekur athygli að á nokkrum stöðum í kerfinu eru fjárlagaliðir hækkaðir vegna gengisáhrifa en spítalinn fær engar slíkar hækkanir. Undarlegasta dæmið snýr að Sjúkratryggingum Íslands sem fá  eðlilega uppfærslu á kostnaði vegna gengisáhrifa á S-merkt lyf,“ skrifar Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans í föstudagspistli sínum.

„Þessi lyf eru að langmestu leyti afgreidd frá LSH en mörg S-merkt lyf eru einnig gefin inniliggjandi sjúklingum á spítalanum og þá borguð beint af fjárheimildum spítalans en ekki Sjúkratrygginga. Þannig að þessi viðbótarfjármögnun vegna gengisáhrifa nær ekki til spítalans. Ég vona því enn að tekið verði tillit til þessa mikla gengiskostnaðar sem spítalinn hefur orðið fyrir (umfram forsendur fjárlaga) og hann ekki látinn bera allan þann halla á þessu ári. Slíkar byrðar munu leiða til enn meiri aðgerða í fjármálum og skerðingar á þjónustu á næsta ári, sem ekki er á bætandi,“ skrifar Björn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert