Kostnaður utanríkisráðuneytisins vegna verktaka, styrkja og sendinefnda vegna heimssýningarinnar er orðinn 163,6 millj. króna í ár.
Þetta er umtalsvert meiri kostnaður en undanfarin ár, en í fyrra var þessi liður í rekstrinum upp á tæplega 142 millj. kr. Í ár hefur heimssýningin EXPO verið allstór liður, en til hennar hafa farið rúmlega 40 milljónir króna.