Þriggja bíla árekstur varð á Gullinbrú í Grafarvogi nú rétt fyrir hádegið. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var einn fluttur slasaður á slysadeild. Enginn var fastur í bílunum. Lögreglan lokaði brúnni fyrir umferð. Slysið er rakið til hálku.
Þrír sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á staðinn auk lögreglu.