Ríkisútvarpið hætti fyrir nokkru við áform um að hafa fréttamann staðsettan í Brussel. Var þessi ákvörðun tekin í ljósi þröngs fjárhags Ríkisútvarpsins.
Þetta kemur fram í svari menntamálaráðherra á Alþingi við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Framsóknarflokks, sem vildi vita hver væri áætlaður árlegur heildarkostnaður við áform Ríkisútvarpsins um að koma á starfi fréttaritara í Brussel.