Hálka og snjókoma á Reykjanesbraut

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Hálka og snjókoma er á Reykjanesbraut og víða á Suðurnesjum. Snjóþekja er á Kjalarnesi. Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir á Snæfellsnesi og hálkublettir á flestum öðrum leiðum. Á Vestfjörðum er hálka og hálkublettir á öllum leiðum.

Á Norðurlandi er hálka og hálkublettir á öllum leiðum. Á Austurlandi er hálka og snjóþekja á flestum leiðum, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert