Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann á öðrum tímanum í nótt grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Að öðru leyti var nóttin mjög róleg hjá lögreglunni. Varað er við að snjór geti tafið umferð á köflum á höfuðborgarsvæðinu.
Einn heimilislaus en ölvaður maður fékk gistingu í fangageymslu lögreglu höfuðborgarsvæðisins í nótt, að öðru leyti voru fangaklefar tómir. Lögreglan varar fólk við að víða á höfuðborgarsvæðinu sé snjór sem geti tafið umferð en annars staðar snjólítið.