Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna, mun að öllum líkindum styðja Icesave frumvarpið til að koma í veg fyrir sundrungu innan flokksins og til bjargar ríkisstjórninni. Andað hefur köldu milli stuðningsmanna og andstæðinga frumvarpsins innan Vinstri grænna.
Hópur innan Heimssýnar undirbýr úrsögn úr félaginu samþykki Ásmundur Icesave-frumvarpið en hann er formaður félagsins.