Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík leitar nú að ljótasta jólatré landsins. Sá er hýsir ljótasta tréð mun hljóta flugeldapakka að gjöf frá Flugbjörgunarsveitinni.
Í tilkynningu frá Flugbjörgunarsveitinni segir, að stundum verði trén sem virtust vera svo fín úti í skógi, að hreinni hörmung
þegar heim í stofu er komið, greinar brotnar af, trénu rústað af nýja
hvolpinum, skreytingin misheppnuð eða tréð veður bráðkvatt með tilheyrandi barrfelli
og þunglyndum greinum.
„Það er engin ástæða til þess að láta afspyrnu illa heppnað jólatré eyðileggja alla hátíðisdagana og þess vegna höfum við ákveðið að gefa þeim sem á ljótasta jólatréð í ár veglegan flugeldapakka," segir sveitin.
Hægt er að setja myndir af jólatrjánum inn á Facebook-síðu Flugbjörgunarsveitanna en þar fer einnig fram kosning um ljótasta tréð. Skilafrestur er til hádegis á gamlársdag.
http://www.facebook.com/group.php?gid=56166041577