Yfir 36 þúsund einstaklingar hafa ritað undir áskorun til forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar um að synja lögum um Icesave staðfestingar, á vef InDefence. Þriðja umferð Icesave-frumvarpsins stendur nú yfir á Alþingi en greiða átti atkvæði um frumvarpið í dag. Ekki liggur fyrir hvort það næst en Ólafur Ragnar hefur boðað til ríkisráðsfundar á Bessastöðum í fyrramálið.