Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í dag.
Þeir sem fengu fálkaorðu í dag eru:
Áshildur Haraldsdóttir tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskrar tónlistar.
Einar Kárason rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir ritstörf og framlag til íslenskra bókmennta.
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu löggæslu og félagsmála.
Helgi Seljan fyrrverandi alþingismaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á opinberum vettvangi og í þágu bindindis- og velferðarmála.
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir í fiskifræði og hafvísindum.
Högna Sigurðardóttir arkitekt, Frakklandi, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar húsagerðarlistar.
Pétur Ágústsson framkvæmdastjóri og skipstjóri, Stykkishólmi, riddarakross fyrir frumkvæði í ferðaþjónustu.
Ragnhildur Guðrún Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, riddarakross fyrir störf í þágu samfélagshjálpar.
Sigríður Jóna Kristjánsdóttir útskurðarmeistari, Grund II, Flóahreppi, riddarakross fyrir framlag til þjóðlegrar listar.
Sólveig Guðlaugsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur á Barna- og unglingageðdeild Landsspítala, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðismála og umönnunar ungmenna.