Einn með lottótölur réttar

Einn var með allar lottótölurnar réttar í kvöld og fær 10 milljónir króna að launum. Tveir voru með fjórar tölur réttar auk bónustölu og fá 219 þúsund hvor.

Sami maður fékk aðalvinninginn og annan bónusvinninginn en hann keypti 5 raða miða í söluturninum Tvistinum í Vestmannaeyjum.  Samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri getspá keypti vinningshafinn einn 5 raða miða og auk þess að vera með allar tölurnar réttar í einni röðinni  þá var hann með 4 réttar tölur auk bónustölu í annarri röðinni og 4 réttar tölur í öllum hinum þremur röðunum.

Hinn bónusvinningyurinn var seldur hjá Olís við Gullinbrú í Reykjavík

Lottótölurnar voru 2, 17, 18, 19 og 29 og bónustalan var 14. Jókertölurnar voru 7 - 0 - 5 - 7 - 6.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert