N1 lækkaði á ný verð á eldsneyti en félagið hækkaði eldsneytisverð í gær. Með lagabreytingum, sem tóku gildi um áramót, hækka opinber gjöld á bensín og olíu.
N1 hækkaði verð á bensínlítra um 1,50 krónur og verð á dísilolíu um 5 krónur. Ekkert annað félag hækkaði eldsneyti og verðið hefur nú lækkað aftur hjá N1. Þar er algengt verð á bensínlítra 188,20 krónur og á dísilolíu 184,90 krónur.
Þegar eldsneytisgjald var hækkað um 10 krónur fyrr á þessu ári hækkuðu sum olíufélög eldsneytið strax en í ljós kom síðan, að eldsneytisgjaldið er greitt við tollafgreiðslu eldsneytisins. Þau félög sem hækkuðu verðið lækkuðu það aftur þar til nýjar birgðir voru fluttar til landsins.