„Útilokað að hann geti staðfest lögin“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Ómar

Formaður Framsóknarflokksins segir að ef forseti Íslands staðfestir frumvarp til laga um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna, til að gleðja pólitíska bandamenn sína, þá sé Ólafur að fara gegn meginboðskap nýársávarpsins. 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir í samtali við mbl.is að Ólafur Ragnar Grímsson hafi lagt á það ríka áherslu í nýársávarpi sínu í gær menn eigi ekki á láta flokkspólitísk tengsl ráða för varðandi ákvörðunartöku

Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðiprófessor sagði hins vegar í samtali við Ríkisútvarpið í gær að hann telji líklegra að forsetinn skrifi undir þó ekki væri hægt að vera viss. „Skrifi hann ekki undir standi hann uppi vinalaus í hinu pólitíska landslagi á Íslandi. Stór hluti þeirra sem vilja að forsetinn neiti að staðfesta lögin eru litlir vinir hans en þeir sem treysta á að hann skrifi undir eru frekar pólitískir félagar,“ er haft eftir Gunnari á vef RÚV.

Sigmundur Davíð segir að þessi greining Gunnars Helga sé mjög sérstök.

„Í ljósi þessara orða hans [Ólafs Ragnars], annars vegar með mikilvægi þess að þjóðin fái meira um það að segja með beinu lýðræði hvernig hlutirnir gangi fyrir sig, og hins vegar sú mikla áhersla sem hann lagði á að það að flokkspólitískir hagsmunir mættu ekki ráða ákvörðunartöku, þá finnst mér eiginlega útilokað að hann geti staðfest lögin,“ segir Sigmundur Davíð.

Hann segir að núna hafi menn tækifæri til að útskýra málstað Íslands í erlendum fjölmiðlum, sem fylgist vel með málinu. „Ef Ólafur synjar staðfestingu þá kemur tækifæri til þess að við útskýrum grundvallar staðreyndir málsins, sem eru þær að við höfum alltaf ætlað okkur að standa við skuldbindingar okkar. Við viljum bara að það sé gætt sanngirni í okkar garð,“ segir Sigmundur Davíð.

Staðfesti forsetinn hins vegar lögin muni það viðhalda þeirri ímynd út á við að Íslendingar séu vanskilamenn. „Þeir hafi ætlað sér að komast hjá einhverjum lagalegum skuldbindingum og hafi á endanum verið þvingaðir til að gera það sem var rétt. Með öðrum orðum, með því að ganga svona frá málinu mun ekki bæta ímynd okkar, það mun þvert á móti festa í sessi þá neikvæðu ímynd sem búið var að koma á,“ segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert