Áfram er kalt á landinu og verður víða allt að 10 stiga frost, samkvæmt spá Veðurstofunnar. 17 stiga frost var við Mývatn í morgun. Gert er ráð fyrir hægri breytilegri átt og léttskýjuðu en skýjuðu með köflum norðanlands. Hægt vaxandi norðlæg átt verður seinnipartinn og víða 5-10 metrar á sekúndu í kvöld með lítilsháttar éljum norðaustantil og við norðurströndina.