Nóttin var fremur róleg hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Dælubílar fóru í þrjú útköll frá því kl. 20 í gærkvöldi. Kveikt hafði verið í ruslagámi við Skúlagötu og þá var tilkynnt um reyk í iðnaðarhúsnæði og í íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Um minniháttar mál var að ræða.