Góður afli fékkst hjá snæfellskum bátum í fyrstu róðrunum á nýju ári. Fram kemur á heimasíðu Snæfellsbæjar, að vel hafi einnig fiskast milli hátíðina þannig að árið lofi um aflabrögð í Breiðafirðinum þetta kvótaárið.
Þeir bátar sem fóru af stað á nýju ári mokfiskuðu strax í fyrsta róðri. Línubáturinn Brynja SH-237 kom með 12,1 tonn þann 2. janúar og í gær kom Tryggvi Eðvars SH-2 með 11,5 tonn. Aðrir bátar fiskuðu einnig mjög vel á línuna og gott var í netin segir á heimasíðu Snæfellsbæjar. Stóru bátarnir voru að tínast á sjóinn í gær og fyrradag.