Forseti Íslands mun gera grein fyrir því hvort hann hyggst staðfesta Icesave lögin á blaðamannafunda á morgun klukkan ellefu. Hver svo sem ákvörðunin verður er ljóst að hún verður umdeild en síðustu daga hefur verið deilt um hvort synjun þýði endalok ríkisstjórnarsamstarfsins. Við hittum við fólk á förnum vegi sem spáir í spilin.