Sameinar fremur en sundrar þjóðinni

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. mbl.is/Kristinn

„Ég er náttúrlega mjög ánægður með þessa niðurstöðu og tel að hún geti orðið upphafið að því að gera þetta mál að máli sem sameinar þjóðina frekar en að sundra henni,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, um ákvörðun forsetans.

Að mati Sigmundar er aðalatriðið núna hvernig menn halda á málinu út af við. „Það þarf að nota tímann næstu daga, á meðan erlendir fjölmiðlar eru að fylgjast með og reyna að átta sig á því hvað er að gerast hér, til að kynna nokkur grundvallaratriði málsins út á við; eins og það að auðvitað hafa Íslendingar alltaf viljað standa við raunverulegar lagalegar skuldbindingar sínar. Þetta snúist bara um málsmeðferðina og sanngirni.

Ríkisstjórnin verður að taka þátt í því og hún getur núna sagt viðsemjendum sínum úti að hún sé búin að gera hvað hún gat til þess að koma þessu í gegn.  Núna þegar þessi staða er komin upp þarf forsætisráðherra og ríkisstjórnin öll að taka þátt í því að kynna fyrir umheiminum hvers vegna Íslendingar voru svona ósáttir við þessa niðurstöðu,“ segir Sigmundur


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert